Harmur Garmur

Það sem ég hef ekki gert.

miðvikudagur, júní 22, 2005

Ég las dálítið hérna sem minnti mig á skemmtilegan tíma. vakti hjá mér smá fortíðarþrá því það var gaman þá. Algjörlega áhugalaust stefnuleysi og drykkja, mikil drykkja með miklum drykkjuvinahópi þó nokkuð föstum við gaurinn Dillon sem alið hefur af sér að ég veit um, nokkra erfingja síðustu ár. Lífið, haha.

Nægjusemi var það heillin.

Það er ekki svo mikið sem þarf. Eitt hús hér, annað hús þar. Bíll þangað og annar bíll hingað þó beyglaður sé. Sími hér og sími þar. Sjónvarp þar en tölvan hér. Tónlist, myndir, matur, vín, reykur, áhugamál, samstæðari matardiskar, náttúrulega gardínur nokkrum sinnum og eldhússtólar, góði bjórinn, ekki sá ódýrasti og svo ég gleymi því ekki þá vantar sumum hlut sem heitir minnta.

Um helgina sá ég gat í loftinu hjá Reyni. Í kvöld sá ég gat í botninum á eldhússkápnum sem er loftið í íbúð Reynis. Reynir kemst í eldhússkápinn minn.