Harmur Garmur

Það sem ég hef ekki gert.

miðvikudagur, nóvember 20, 2002

Ég er í vinnunni núna. Ætti að vera smíða helvítis helling af veitingahúsakjaftæði einhverju (ég er stálsmiður sko) en bara nenni því engan veginn. Ég er eiginlega hálffúll út í vinnuveitandann minn,í morgun þurfti ég að redda lífeyrissjóðnum mínum staðfestingu á því að ég væri að borga í helvítið. En það börnin mín góð á alfarið að vera í höndum Brands (vinnuveitanda). Vandamálið er bara að Brandur er eiginlega bara krakki eins og ég og klúðrar hlutunum alveg eins og ég. Það er eitthvað sem ég hef þurft að hugsa um. Vinnuveitendur okkar eru fíbbl alveg eins og við. Brandur kallinn má nú alveg eiga það að við fáum besta kaffi sem völ er á í þessum ömurlega bjarta heimi sem við,við hérna,við BÚUM Í ! Já og ég fæ fín laun. Ég var að redda lífeyrissjóðnum í morgun,mig vantar lán ( 130% eignarhlutur íbúðarinn er eitthvað svona.....)fyrir neysluskuldum gamla daga.Langar ekki að tala um það núna. anyways þá er ég að keyra sæbraut og sé að framundan er lögreglan að beina bílum á planið hjá Sólfarinu (víkingaskipsbeinagrindin),stöðva þá og rabba við. Góðan dag,ökuskírteini? Allir bara,já gjörðu svo vel herra sveittir eftir að hafa sett öryggisbeltin á sig á mettíma. Ég fæ drög að taugaáfalli. Léttirinn þegar áttaði mig á að bíllinn á undan var í síðasta holli að þessu sinni var ótrúlegur. Ég keyrði af sæbrautinni og inn á Kalkofnsveg og af Kalkofnvegi inn á Geirsgötu og af Geirsgötu inn á Mýrarveg ( Þetta er allt sama helvítis gatan! ). Ég er próflaus.

þriðjudagur, nóvember 19, 2002

Nei,haldið bara áfram án mín.

mánudagur, nóvember 18, 2002

Hananú. Ég bara týndist. Furðulegt maður. Fjárans fjandi bara,ha?

Minn aumi heili mun aldrei geta skrifað eitthvað nærrum nógu merkilegt hér svo aðrir munu gera sér sérstaklega ferð hingað til að athuga hvað er að gerast í höfði mínu. Þessu fallega velskapaða höfði sem býr í 101 (ég þjáist lítillega af maniodepression). Þar finnst því gaman að búa. Ég keypti því íbúð þar sem ég skulda bara um það bil 130% af,vel af sér vikið það.
Þetta er leiðindar inngangur. En ég held ótrauður áfram því hér ætla ég að skapa mér nafn. Nei annars það ætla ég ekki að gera,en samt......jú. Fyrir um það bil tveimur mánuðuðum síðan,breyttist ég. Allt annar hugsunarháttur í dag. Stökk úr einum minnihlutahóp yfir í annan. Var rauðhærður en er nú örvhenntur. (samlíking) Skiluru það ekki helvítið þitt,HA! Skiluru það! Gott.
Mikið er annars gott að vera kominn heim úr óravíddum alheimsins (reyndar bara sumarbústað í borgarfirði) og borða steiktan þorsk með kartöflum (ég fæ fiskinn gefins, skulda 130% mannstu). Nei,neinei. Jæja en þetta verður ekki svona leiðinlegt og bara alls ekki svona. Ég ætla að hætta að safna teskeiðum,það er bara heimskulegt. Ég meina ef ég ætla að finna nýja vinnu og segist safna þessu helvíti. HAH! Hvað segja þeir þá? Hálvitar. Ég safna sko skeiðum ef mig bara langar. Mig langar það ekki,og bollarnir,já blessaðir bollarnir. Það dó hér um bil,í fæðingu takk. Slíta lestur við kommu sagði helvítið hann Guðráð,smávaxna merkikerti. ( í alvörunn var hann svona 165 sentimetrar)
Ég er 25 ára og síðustu helgi gerði ég ásamt vinum mínum rannsókn á tannkremstúpu í borgarfirði ( í óravíddum helvítis).