Harmur Garmur

Það sem ég hef ekki gert.

þriðjudagur, mars 30, 2004

Camel filterslaus.
Kjánalegar sígarettur dálítið. Til að byrja með er pakkinn skrítinn í laginu (miðað við þetta venjulega). Sígaretturnar sjálfar eru líka asnalegar, maður brennir sig ef maður ætlar að nýta þær eins vel og þær með filter, það kom þrisvar fyrir mig í dag. Þegar ég er í vinnunni þarf ég oft að hafa sígarettuna milli varanna meðan ég reyki því báðar hendur mínar eru uppteknar, það er ógeðslegt með filterslausan Camel. Maður fær ónot í hálsinn og kemst eiginlega ekki hjá því að hósta og þá dettur sígarettan eða maður þarf að nota hendur. Maður nær heldur ekki eins góðum smók eins og þegar filterinn er.
Niðurstaða: Asnalegar sígarettur.
Einkunn: 2.

Þegar ég kom heim áðan var einhver hrollur í mér, ég fór í sturtu með hrollinn með mér og fékk þá svakalega gæsahúð á rassinn. Alveg svakalega, þetta var eins og að strjúka kjúkling áður en hann er eldaður. Þeir sem vita ekki hvernig það er ættu að gefa sér tíma næst áður en fuglinum er hennt í ofn eða pott að strjúka hann. Passið ykkur á því að enginn sé að horfa samt því ekki viljum við vitni að slíku athæfi er það?